Um listakonuna

Heiða Lind útskrifaðist með BA gráðu í Fine Arts frá Flagler College í St. Augustine í Flórída.

Hún hefur einnig numið hjá listakonunni Patriciu Thompson í Daytona Beach í Flórída.

Vorið 2011 lauk hún námi í Mótun í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Mótun er tveggja ára nám á háskólastigi þar sem unnið er með leir, postulín og önnur efni og áhersla lögð m.a. á hönnun.

Tveimur árum síðar útskrifaðist Heiða Lind með M.Art.Ed. gráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands.